OLYMPUS DIGITAL CAMERA

Ferjan

Elding, Hvalaskoðun Reykjavík, er fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki sem gert hefur út á hvala­skoðun og aðrar ævin­týra­ferðir á sjó frá árinu 2000. Frá árinu 2007 hefur fyr­ir­tækið haft samn­ing við Reykjavíkurborg um rekstur Viðeyjar og býður upp á ferju­sigl­ingar til Viðeyjar.

Starfsmönnum Eldingar er umhugað um fal­lega og við­kvæma nátt­úr­una í Viðey. Fyrirtækið er vottað af EartCheck og bátar þeirra bera Blá fán­ann. Árið 2008 hlaut Elding Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu og stöð­ugar fram­farir í umhverf­is­málum er mik­il­vægur þáttur í starfi fyrirtækisins.

Yfir sum­ar­mán­uð­ina eru dag­legar áætl­un­ar­ferðir bæði frá Skarfabakka og Ægis­garði. Yfir vetr­ar­mán­uð­ina eru áætl­un­ar­ferðir á laug­ar­dögum og sunnu­dögum frá Skarfabakka. Gestur er aðal­bát­ur­inn í Viðey en Elding hefur einnig yfir að ráða stærri bátum sem not­aðir eru fyrir stóra hópa og/eða vegna við­burða í eyjunni.

Upplýsingar um Eldingu.

Rekstrarstjóri
Guðlaugur Ottesen Karlsson
gulli@elding.is