Gróðurfar
Viðey er afar gróðursæl og var öldum saman talin ein besta bújörð landsins. Þar sjást enn ummerki túna og hlaðinna garða sem héldu búpeningi frá slægjunni. Til að auka rými til ræktunar voru grafnir skurðir í eyjunni til að ræsa fram mýrar. Núna eru í Viðey 156 háplöntur, en það er um þriðjungur af flóru landsins.
Skúli Magnússon gerði ýmsar ræktunartilraunir í eyjunni sem gengu misvel og má þar nefna ræktun á kartöflum, káli, tóbaki og trjágróðri. Hann ræktaði einnig kúmen sem vex þar í vegköntum. Það er jafnan fullþroskað í ágúst og er þá dökkt á lit.
Fuglalíf
Margar elstu heimildir um Viðey tengjast fjölbreyttu fuglalífi og höfðu Viðeyingar öldum saman mikla dúntekju. Æðarfugli er aftur tekið að fjölga í Viðey eftir fækkun á fyrri hluta 20. aldar. Hann er nú orðinn algengasti fuglinn í Viðey og verpir beggja vegna við Þórsnesið en þar er eyjan friðuð yfir varptímann. Aðrar algengar fuglategundir í Viðey eru fýll, grágæs, hrossagaukur, sendlingur og tjaldur. Fyrir fáeinum árum tók jaðrakan einnig að verpa í eyjunni en alls verpa tæplega 30 fuglategundir í Viðey. Eyjan er því fuglaparadís og líflegastar eru tjarnirnar á Eiðinu.
Við biðjum gesti að sýna fuglalífinu tillitssemi, fara eftir gönguleiðum og hrófla alls ekki við hreiðrum.
Jarðfræði
Fyrir tveimur milljónum ára var í Viðey virk eldstöð. Viðeyjareldstöðin, og í eyjunni er elsta berg borgarlandsins. Fyrir um 12–13 þúsund árum bráðnaði jökulísinn, sjávarborð hækkaði og eyjan hvarf undir yfirborð sjávar. En sjávarborðið lækkaði aftur og fyrir 9–10 þúsund árum reis Viðey úr sæ.
Viðey er um 1,6 km2 að stærð og skiptist í tvo hluta, Heimaey og Vesturey, sem tengjast með Eiðinu. Austurhluti Heimaeyjar kallast Austurey. Meðfram strönd eyjunnar sjást stórbrotnar bergmyndanir og er vel þess virði að gefa sér góðan tíma í fjörunni. Einnig skal bent á fegurð stuðlabergsins, bæði í Virkishöfðanum og Eiðisbjarginu. Viðey á stöðugt undir högg að sækja vegna ágangs sjávar og sjást þess skýr merki við Kríusand og Þórsnes.
Vinsamlega sýnið sérstaka aðgát við háa sjávarhamra.