Viðey er um 1,6 km2 að stærð og skiptist í tvo hluta, Heimaey og Vesturey, sem tengjast með Eiðinu. Eyjan er afar gróðursæl og var öldum saman talin ein besta bújörð landsins. Þar sjást enn ummerki túna og hlaðinna garða.
Viðey rís hæst 32 metra yfir sjávarmáli og meðfram strönd eyjarinnar sjást stórbrotnar bergmyndanir. Skal sérstaklega bent á fegurð stuðlabergsins í Virkishöfðanum og Eiðisbjarginu. Æðarfugl er algengasti fuglinn í Viðey og verpir hann beggja vegna við Þórsnesið, en þar er eyjan friðuð yfir varptímann, á tímabilinu 1. maí — 1. júlí. Aðrar algengar fuglategundir í eyjunni eru fýll, grágæs, hrossagaukur, sendlingur, og tjaldur en alls verpa þar um 30 fuglategundir.
Viðey er ekki hættulaus staður. Þar er að finna kletta, skurði og tjarnir sem geta verið varhugaverð. Við bendum á að börn eru á ábyrgð foreldra eða annarra forráðamanna í eyjunni.