Þriðjudaginn 21. ágúst býðst áhugsömum að mæta eitt kvöld í ókeypis stafgöngukennslu hjá Guðnýju Aradóttur, einum fremsta leiðbeinanda landsins í þessari íþrótt. Stafganga er holl og góð hreyfing fyrir alla og hefur hún undanfarin ár rutt sér til rúms sem fyrirtaks heilsurækt og útivist. Sífellt fleiri sækja námskeið í stafgöngu og stunda íþróttina reglulega í kjölfarið. Þeir sem eiga stafi taka þá með, en einnig verður hægt að fá stafi lánaða hjá leiðbeinandanum.
Í sumar eru aukaferðir á þriðjudagskvöldum til Viðeyjar frá Skarfabakka kl. 18:15 og 19:15. Kaffihúsið í Viðeyjarstofu er opið þessi kvöld og upplagt að njóta kvöldverðar í eynni áður en heilsuræktin byrjar. Stafgangan hefst kl. 19:30 við Viðeyjarstofu og tekur eina og hálfa til tvær klukkustundir.
Að göngu lokinni er upplagt að tylla sér niður í Viðeyjarstofu og fá sér hressingu áður en haldið er heim á leið en seinasta ferjan fer úr Viðey kl. 22:00.
Gjald í ferjuna fram og til baka er kr. 1000,- fyrir fullorðna og kr. 500,- fyrir börn 7–15 ára í fylgd fullorðinna. Frítt fyrir 6 ára og yngri. Stafgangan er ókeypis og öllum opin.
Við minnum á að handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og í Viðeyjarstofu.