Söngdívan Sigríður Thorlacius syngur í Viðey fimmtudagskvöldið 16. ágúst. Henni til halds og trausts verður bassaleikarinn Guðmundur Óskar Guðmundsson.
Guðmundur og Sigríður kynntust í Menntaskólanum við Hamrahlíð þar sem þau sungu í Kór Menntaskólans við Hamrahlíð og síðar Hamrahlíðarkórnum.
Bæði stunduðu þau frá unga aldri klassískt nám sem og nám í jazz-músík við Tónlistarskóla FÍH.
Sigríður og Guðmundur hafa margoft starfað saman og eru bæði meðlimir í hinni landsþekktu hljómsveit Hjaltalín. Þau munu spila og syngja saman lög frá hinum ýmsu þjóðum, frá hinum ýmsu tímum og úr hinni og þessari áttinni.
Í Viðeyjarstofu eru ljúffengar veitingar á boðstólnum, tónleikagestir geta notið kvöldverðar fyrir tónleikana og þurfa þá að panta borð í síma 533 – 5055 eða videyjarstofa@videyjarstofa.is.
Sigling fyrir matargesti er frá Skarfabakka kl. 18:15
Aðrir tónleikagestir sigla frá Skarfabakka kl. 19:15
Miðar seldir á midi.is. Verð fyrir tónleikana og ferjuna er 3.000 kr.