Viðey fagnar Hinsegin dögum, hýr og kát, með frábærri fjölskyldudagskrá sunnudaginn 12. ágúst í samvinnu við Félag hinsegin foreldra. Dagskráin hefst kl 14:30 en frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu
Gay Pride.
Dagskrá
11:30 – 17:00 Regnbogaveitingar í Viðeyjarstofu fyrir börn og fullorðna
14:30 Samverustund og leikir í boði Félags hinsegin foreldra
15:30 Töframaður mætir á svæðið
Öll börn fá sérstakan glaðning við komuna til Viðeyjar
Leikvöllur við Viðeyjarstofu
Hestaleigan er opin
Í Viðeyjarstofu verða ljúffengar veitingar á boðstólnum allan daginn; meðal annars kræklingur, graflax, síld, samlokur, vöfflur, kökur og fleira.
Siglt er frá Skarfabakka í Sundahöfn á klukkustundar fresti frá kl. 11:15–17:15 og oftar ef þörf krefur.
Ferjutollur er 1.000.- kr. fyrir fullorðna, 500.- kr. fyrir börn 7–15 ára og frítt fyrir þau yngstu.
Miðasala fer fram við ferjuskúr á Skarfabakka samdægurs.