Heiðar Kári Rannversson verður með leiðsögn um listaverkin í Viðey þriðjudaginn 31. júlí. Hann ræðir um Friðarsúlu Yoko Ono og Áfanga eftir hinn kunna, bandaríska listamann Richard Serra.
Heiðar Kári útskrifaðist með BA gráðu í listfræði frá Háskóla Íslands vorið 2009 en lokaverkefni hans fjallaði um listaverkin í Viðey. Í leiðsögn sinni skoðar Heiðar Kári tengsl verkanna við umhverfið og áhorfendur.
Í sumar eru aukaferðir á þriðjudagskvöldum til Viðeyjar frá Skarfabakka kl. 18:15 og 19:15. Kaffihúsið í Viðeyjarstofu er opið þessi kvöld og upplagt að njóta kvöldverðar í eyjunni áður en leiðsögn byrjar. Gangan hefst kl. 19:30 við Viðeyjarstofu og tekur um eina og hálfa klukkustund.
Að göngu lokinni er upplagt að tylla sér niður í Viðeyjarstofu og fá sér hressingu áður en haldið er heim á leið en seinasta ferjan fer úr eynni kl. 22:00. Gjald í ferjuna fram og til baka er kr. 1000,- fyrir fullorðna og kr. 500,- fyrir börn 7–15 ára í fylgd fullorðinna. Frítt fyrir 6 ára og yngri. Leiðsögnin er ókeypis og öllum opin.
Við minnum á að handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og í Viðeyjarstofu.