Friðarsúlan í Viðey verður tendruð með friðsælli athöfn 9. október nk., fæðingardegi John Lennon, klukkan 20.00.
Líkt og undanfarin ár býður Yoko Ono gestum sem vilja vera viðstaddir tendrun súlunnar í fría kvöldsiglingu til Viðeyjar. Veitingahúsið í Viðeyjarstofu verður opið og þar verður Óskatré Yoko Ono komið fyrir. Sjálf dagskráin við Friðarsúluna hefst í Viðeyjarnausti klukkan 19:00 með tónlistarflutningi söngkonunnar Ragnheiðar Gröndal og gítarleikarans Guðmundar Péturssonar, en þau spila fyrir gesti fyrir og eftir tendrun. Naustið verður lýst upp með kertum, þar stendur annað Óskatré og gestir geta sest niður, keypt sér hressingu, skrifað óskir og hlýtt á fallega tónlist. Kórinn Hljómeyki tekur við,af Ragnheiði og Guðmundi og flutt verða stutt ávörp áður.
Sigingar til Viðeyjar verða frá Skarfabakka og hefjast klukkan 18:00. Fríar strætóferðir verða frá Hlemmi að Skarfabakka og til baka. Fyrsti vagn fer klukkan 18:40 frá Hlemmi og síðan á tuttugu mínútna fresti fram til kl. 19.40. Að athöfn lokinni siglir fyrsta ferja frá Viðey kl. 21:00 og munu strætisvagnarnir taka á móti fólki og flytja það að Hlemmi allt fram til 22:30.
Miðvikudaginn 10. október hefjast svo hefðbundnar Friðarsúlusiglingar sem farnar verða kl.20:00 á hverju kvöldi til 8. desember. Gjald í þær ferðir er kr. 5000.- fyrir fullorðna og kr. 2500.- fyrir börn 7–15 ára. Allar nánari upplýsingar um þessar ferðir er að finna á www.elding.is
Yoko Ono veitir fyrr um daginn fimm alþjóðlegum friðarsinnum viðurkenningu úr LENNONONO-friðarsjóðnum / LENNONONO GRANT FOR PEACE. Er viðurkenningin veitt annað hvert ár í Reykjavík og er þetta í fjórða sinn sem athöfnin fer fram hér á landi.