Viðburðir

Hátíð hafsins: Sjómannadagssigling og eyjaferð

01.06.2013

Sigling frá Gömlu höfn­inni um Sundin og út í Viðey er afar við­eig­andi skemmtun þegar haf­inu og sjó­mennsku er fagnað. Í Viðey er gaman að skoða merkar minjar um útgerð Milljónafélagsins, týna skeljar og fá sér krafti­mikið sjó­mannadagskaffi og með­læti í Viðeyjarstofu, elsta steins­húsi lands­ins, áður en siglt er til baka til meginlandsins.

Kvennahlaupið í Viðey

08.06.2013

Viðey tekur þátt í Kvennahlaupi ÍSÍ í fjórða sinn í sumar. Það er sér­lega nota­legt að hlaupa í Viðey; hal­upaleiðin mjúk undir fæti, ilmur af sjó, mold og grasi, fugla­söngur, og fögur nátt­úra — og það í fimm mín­útna sigl­ingu frá skarkala borgarinnar!

Fjölbreytt fuglalíf — þriðjudagsganga

11.06.2013

Jóhann Óli Hilmarsson fugla­fræð­ingur og ljós­mynd­ari sýnir og fræðir göngu­gesti um fjöl­skrúð­ugt fugla­líf Viðeyjar í þriðju­dags­göngu 12. júní. Fuglaskoðunargöngurnar hafa verið með vin­sæl­ustu þriðju­dags­göngum Viðeyjar enda er fugla­líf þar fádæma fjör­ugt en um 30 teg­undir fugla verpa í eynni.

Dagur hinna villtu blóma

16.06.2013

Dagur hinna villtu blóma verður hald­inn hátíð­legur í Viðey í sam­starfi við Grasagarðinn í Laugardal sunnu­dag­inn 16. júní árið 2013. Ganga og leið­sögn um ævin­týra­heim hinna villtu blóma í Viðey!

Listaverkin í Viðey

18.06.2013

Heiðar Kári Rannversson list­fræð­ingur verður með leið­sögn um lista­verkin í Viðey þriðju­dag­inn 31. júlí. Hann ræðir um umhverf­islista­verkið Áfanga eftir hinn kunna, banda­ríska lista­mann Richard Serra og Friðarsúlu Yoko Ono.

Skátamót í Viðey

20.06.2013 - 23.06.2013

Skátarnir eiga Viðey dag­ana 20–23 júní þegar Landnemar halda sitt árlega Viðeyjarmót. Nánari upp­lýs­ingar www.videyjarmot.is

Hjólað með Íslenska fjallahjólaklúbbnum

25.06.2013

Hjólað með Íslenska fjalla­hjóla­klúbbnum 25.06.2013 kl. 19:15 — 22:00   Fjallahjólaklúbburinn fer í sína árvissu hjóla­ferð til Viðeyjar þriðju­dag­inn 25. júní. Hjólað verður um eyj­una og sagan skoðuð, hús og minjar. Hjólaleiðin er hvorki löng né strembin og því geta allir notið ferð­ar­innar, hjólagarpar sem og byrj­endur. Þátt­tak­endur komi með eigin reið­hjól – eng­inn auka­kostn­aður vegna hjól­anna. Á […]

Skipskaðar við Viðey

02.07.2013

Skipskaðar við Viðey 02.07.2013 kl. 19:15 — 22:00 Margar sagnir eru til af skipsköðum á sund­unum í Kollafirði en þeirra þekkt­astar eru Ingvarsslysið 7. apríl 1906 og strand tund­ur­spill­is­ins Skeena þann 24. októ­ber 1944. Í upp­hafi 20. ald­ar­innar hóf félagið P. J. Thorsteinsson & Co að gera út frá Sundbakka, aust­ast í Viðey og voru reist […]