Viðeyjarstofa er tilvalinn staður til að koma saman
og njóta veitinga í rólegu og notarlegu umhverfi. Þar er rekið kaffihús og veitingastaður í tengslum við siglingar Viðeyjarferjunnar.
Á sumrin er opið daglega frá 11:30 til 18:00. Auk þess er opnunartíminn framlengdur í tengslum við þriðjudagsgöngur, fimmtudagstónleika og aðra viðburði. Á matseðlinum er að finna krækling úr Breiðafirðinum, graflax, síld, vöfflur og fleira góðgæti.
Á veturna er opið um helgar frá 13:30 til 16:00. Auk þess
er opnunartíminn framlengdur í tengslum við fimmtudagstónleika og aðra viðburði. Á matseðlinum er að finna kakó, kaffi, vöfflur og annað sætmeti.
Viðeyjarstofa er einnig tilvalinn staður fyrir veislur, fundi og aðrar uppákomur allan ársins hring. Efri hæðin rúmar allt að 130 manns í sæti og hæðinni eru minni rými fyrir allt frá 10 til 25 manns.
Gallery Restaurant – Hótel Holti sér um veitingarekstur í Viðey og hefur gert frá apríl 2010. Veitingastðurinn hefur frá upphafi skipað sér í fremstu röð hér á landi enda gert út á gæði, fagmennsku og þjónustu.