OLYMPUS DIGITAL CAMERA

Skólahópar

Á hverju vori kemur mik­ill fjöldi nem­enda í grunn­skólum Reykjavíkur og nágranna­sveit­ar­fé­laga í heim­sókn til Viðeyjar. Við leggjum okkur fram um að taka vel á móti þeim og gera heim­sókn­ina sem eftirminnilegasta.

Viðeyjarnaust stendur öllum gestum Viðeyjar opið meðan á áætl­un­ar­sigl­ingum stendur og því geta hópar átt von á að deila Naustinu með öðrum gestum sem koma til Viðeyjar.

Kennurum og leið­bein­endum sem hafa hug á að koma með nem­endur sína í heim­sókn til Viðeyjar er bent á að hafa sam­band við verk­efna­stjóra Viðeyjar, Svanbjörgu H. Einarsdóttur í síma 693 1440 eða senda fyr­ir­spurn á net­fangið: svanbjorg.h.einarsdottir@reykjavik.is

Verkefnastjóri tekur á móti hópum og veitir eilitla leið­sögn sem sniðin er að þörfum hvers hóps fyrir sig. Hægt er að velja ýmsar göngu­leiðir sem henta hópnum, skoða Viðeyjarkirkju, leika á leik­svæði við Viðeyjarstofu og fara í fjör­una, skoða Friðarsúluna og borða síðan nesti eða hádeg­is­verð í Viðeyjarnausti. Leiðsögnin og öll aðstaða er skóla­hópum að kostn­að­ar­lausu en ferðir þarf að panta hjá Eldingu/Hvalaskoðun. Rekstrarstjóri Viðeyjarferða hjá Eldingu er Guðlaugur Ottesen, net­fang: gulli@elding.is

Viðeyjarnaust rúmar um 100 manns og þar er sal­ern­is­að­staða og vísir að eld­húsi. Fyrir utan Viðeyjarnaust er mynd­ar­legt kola­grill sem nýtur mik­illa vin­sælda. Mikil stemn­ing mynd­ast þegar pylsum er skellt á grillið eftir göngu­túr­inn. Umsjónarmönnum er bent á að hafa með allt sem þarf til grills­ins, þ.e.a.s. allan mat og með­læti, kol, grill­tangir, diska, glös og þess háttar.