Fréttir

Sumarsólstöðuganga föstudaginn 21. júní

17.06.2013

Föstudagskvöldið 21. júní verður gengin sól­stöð­u­ganga í Viðey eins og tvö und­an­farin ár en þetta er tutt­ug­asta og níunda sól­stöð­u­gangan í Reykjavík og nágrenni. Þór Jakobsson veð­ur­fræð­ingur og fleiri leiða göng­una. Á sum­arsól­stöðum 21. júní árið 1985 var fyrsta sól­stöð­u gangan gengin frá Þing­völlum til Reykjavíkur en upp frá því voru farnar ýmsar leiðir um höfuðborgarsvæðið. […]

Listaverkin í Viðey — þriðjudagsgangan 18. júní

17.06.2013

Heiðar Kári Rannversson verður með leið­sögn um lista­verkin í Viðey þriðju­dag­inn 18. júní. Hann ræðir um Friðarsúlu Yoko Ono og Áfanga eftir hinn kunna, banda­ríska lista­mann Richard Serra.

Tónhvörf með KÍTÓNS-krafti

09.06.2013

KÍTÓN er glæ­nýtt félag kvenna í tónlist á Íslandi. Félagar eru fjöl­margar tón­list­ar­konur á Íslandi sem flytja og semja alla teg­und tón­listar; klassík, jazz, poppi, nýaldar og raf­tónlist og allt þar á milli.

KÍTÓN konur munu standa fyrir meiri­háttar tón­leika­sumri í Viðey í sumar þar sem tvær tón­list­ar­konur eða fleiri stilla saman oft ólíka strengi. Tónleikaröðin kall­ast TÓNHVÖRF þar sem ólíkar tón­list­ar­stefnur hverf­ast saman í eina og kven­lægir kraftar svífa yfir eynni!

Villiblómadagur í Viðey

09.06.2013

Dagur hinna villtu blóma verður hald­inn hátíð­legur í Viðey í sam­starfi við Grasagarðinn í Laugardal sunnu­dag­inn 16. júní árið 2013. Lagt verður af stað í göng­una um hádeg­is­bil og því til­valið að taka ferj­una kl. 11:15.

Hugleitt í eyju fortíðar og friðar

05.06.2013

Í Viðey eru tengslin við nátt­úr­una, frið­inn og for­tíð­ina óvenju sterk. Þar er gott að hug­leiða og slaka á. Það reyn­ist þó ekki öllum auð­velt að ná stjórn á hug­anum og láta streit­una líða úr líkamanum.

Eftir Kvennahlaupið á laug­ar­dag­inn 8. júní eða klukkan 13:00 verður í boði ein­stakt nám­skeið í hug­leiðslu og slökun undir fugla­söng og seið­andi gong-hljómi. Námskeiðið stendur yfir í u.þ.b. tvær klukku­stundir og kostar 2000 krónur.

Vínveisla í Viðeyjar– Slotinu

04.06.2013

Það er vel við hæfi að halda Bordeaux-veislu í Viðeyjarstofu sem á dögum Skúla fógeta var ætíð kölluð Slotið — höllin.  Bordeaux veislan er glæsi­við­burður en þangað mæta full­trúar þekkt­ustu vín­húsa Bordeaux í Frakklandi og kenna og kynna víns­mökkun og gald­ur­inn við að þekkja og fram­leiða góð vín. Í boði er frá­bær mat­seð­ill og er […]

Kvennahlaup,hugleiðsla og eðalveislur

02.06.2013

Viðey er til­valin hlaupa­eyja og verður hægt að hlaupa, 3 km eða 7 km í Kvennahlaupinu á laug­ar­dag­inn 8.júní. Ferjan siglir með hlaupa­konur klukkan 10 um morg­unn­inn frá Skarfabakka og hlaupið hefst um 10:30. Eftir hlaupið er til­valið að teygja vel, syngja með lóunum og fá sér svo kannski kræk­ling og hvít­vín, nú eða góðan […]

Fyrstu hestarnir komnir

15.05.2013

Þegar líður að sumri lifnar ekki ein­ungis yfir fugla­líf­inu í Viðey heldur hafa nokkrir hestar frá hesta­leig­unni Laxnes verið þar gestir sum­ar­langt í nokkur ár. Annað árið í röð rekur Laxnes hesta­leiga útibú í Viðey.  Þar verða í boði reið­túrar í ein­stakri nátt­úru eyj­unnar, fyrir hádegi fyrir reind­ari knapa og eftir hádegi fyrir byrj­endur. Það […]

Metþátttaka í páskaeggjaleit í Viðey

30.03.2013

Það var mikið líf og fjör í Viðey í dag. Um 530 manns lögðu leið sína þangað til að taka þátt í páska­eggja­leit sem Elding skipu­lagði í sam­vinnu við sæl­gæt­is­gerð­ina Freyju, Viðeyjarstofu og Reykjavíkurborg. Alls voru um 600 lítil páska­egg frá Freyju falin á tveimur svæðum; í nágrenni Friðarsúlunnar og Gamla þorps­ins. Nokkrir heppnir þátttakendur […]

Friðarsúlan á vorjafndægri

15.03.2013

Friðsúlan mun lýsa upp kvöld­him­in­inn á vor­jafn­dægrum og vik­una þar á eftir. Á þessum tíma eru dag­ur­inn um það bil jafn­langur nótt­unni hvar sem er á jörð­inni. Í boði eru skemmti­legar kvöld­ferðir út í Viðey, með leið­sögn, að skoða Friðarsúluna í návígi.