IMG_2692

Aðstaða

Í Viðey er skemmti­leg og öðru­vísi aðstaða til funda– og ráð­stefnu­halda. Þá er leitun að skemmti­legri stað til veislu– og hátíðarhalda.

Viðeyjarkirkja er öllum opin en kirkjan er mikið notuð fyrir ýmsar athafnir, sér­stak­lega á sumrin.
Leitun er að róm­an­tísk­ari kirkju til að gifta sig í heldur en kirkj­unni hans Skúla fógeta. Þá er ógleym­an­leg stund þegar litlum krílum er gefið nafn og org­elið í litlu fal­legu krikj­unni hljómar alveg ágætlega. 

Veislan getur verið fáguð og fögur í Viðeyjarstofu eða sveita­veisla í Viðeyjarnausti, einnig er hægt að rölta út fal­lega skóla­húsið eða halda skemmti­lega öðru­vísi litla veislu í Vatnstankinum.

Viðeyjarstofa er eitt elsta hús lands­ins og fyrsta stein­húsið sem reist var á Íslandi. Var hún byggð á árunum 1752–1755. Í kjall­ara húss­ins hefur verið komið Á efri hæð Viðeyjarstofuupp sögu­sýn­ingu sem vert er að skoða.

Gallery Restaurant – Hótel Holti sér um allar veit­ingar í Viðeyjarstofu og hefur gert frá apríl 2010.

Ef haldið er til vinstri (í vestur) frá Viðeyjarstofu verður á vegi manns frið­arsúla Yoko Ono og svo Viðeyjarnaust.

Viðeyjarnaust stendur öllum gestum Viðeyjar opið meðan á áætl­un­ar­sigl­ingum stendur og því geta hópar átt von á að deila Naustinu með öðrum gestum sem koma til Viðeyjar.

Viðeyjarnaust rúmar um 100 manns og þar er sal­ern­is­að­staða og vísir að eld­húsi. Fyrir utan Naustið er mynd­ar­legt kola­grill sem nýtur mik­illa vin­sælda. Mikil stemn­ing mynd­ast þegar pylsum og öðru er skellt á grillið eftir göngu­túra. Gestum er bent á að hafa með allt sem þarf til grills­ins, þ.e.a.s. allan mat og með­læti, kol, grill­tangir, diska, glös og þess háttar. Þetta þarf að bera frá bátnum og er um 10 mín­útna gangur í Viðeyjarnaust. Naustið er lokað yfir vetr­ar­tím­ann frá 1. októ­ber til 1. maí.

Þeir sem halda beint áfram fram­hjá Viðeyjarstofu og kirkj­unni munu brátt koma að hestagirð­ingu en þar er hesta­leiga og þar eru einnig sal­erni fyrir gesti Viðeyjar. Ef gengið er áfram veg­inn í austurátt koma menn eftir um kort­ers göngu að skólanum.

Gamli skól­inn er öllum opinn, þar á veggjum eru myndir frá gamla tím­anum og þar er einnig salernisaðstaða.

Salernisaðstaða er sem sagt: í Viðeyjarnausti, Gamla skóla­hús­inu og svo fyrir aftan Viðeyjarstofu rétt hjá hestagirðingunni.